16. september 2003
Búvélasafnið vantar brúsavagn
Á tíð mjólkurbrúsanna smíðuðu bændur sér létta handvagna sem brúkaðir voru til þess að trilla mjólkurbrúsunum á út á brúsapall. Var mikið hagræði af þessum vögnum. Tími brúsanna er (kannske sem betur fer) löngu liðinn. Við Búvélasafnskallar (sem höfum tekið gleði okkar á ný eftir dæmalaust góða frammistöðu Skagamann í deildinni...) höfum verið að svipast um eftir gömlu, litlum, nettum og heillegum mjólkurbrúsahandvagni með þekkta sögu. Veist þú um svona vagn sem falur kynni að vera? Láttu okkur þá endilega vita!
Síminn er 433 7000, eða GSM 894 6368/Bjarni Guðmundsson, eða rafpósti á bjarnig@hvanneyri.is