Senda á Facebook
3. september 2003

Sverrir Markússon dýralæknir

Þann 24. ágúst sl. afhenti Sverrir S. Markússon fyrrverandi dýralæknir Búvélasafninu á Hvanneyri merkilega gjöf. VarSverrir afhendir Bjarna Guðmundssyni gjöfina þar um að ræða lækningaáhöld hans, en Sverrir hóf störf sem dýralæknir um miðjan sjötta áratug síðustu aldar, starfaði m.a. sem héraðsdýralæknir í Húnaþingi og síðan í Mýrasýslu. Sverrir varð áttræður þann 16. ág. sl.

 

 

Einhver kann að spyrja hvaða erindi dýralækningaáhöld eigi á búvélasafn? Þá skal sú skýring gefin að Búvélasafnið á Hvanneyri er hægt og sígandi að marka áherslu sína á tæknisögu landbúnaðarins í víðum skilningi: til þess að draga fram þátt fagkunnáttu og verktækni í þróun landbúnaðarins, sérílagi á 20. öld. – þar sem vélar og tæki eru að sönnu miðlægur þáttur.

 

Síðustu áratugina hafa dýralækningar breyst mikið: úr frumstæðum hjálparaðgerðum laghentra bænda þar sem dýralæknar voru sárafáir í stórum umdæmum til sérhæfðrar dýralæknaþjónustu nútímans. Áhöldin hans Sverris S. Markússonar eru afar verðmætur stofn í safn til þessarar sögu.

 

Búvélasafnið á Hvanneyri er afar þakklátt Sverri og fjölskyldu hans fyrir þessa gjöf. Sverris-safnið bíður þess nú að verða skráð, en stefnt er að því að búa hluta þess til sýningar strax í vetur.