7. janúar 2010
Gervitré voru það ....
Lokið er fornum jólum og þá um leið könnun sem gerð var hér á síðunni um það hver tegund jólatrjáa prýddi stofur lesenda síðunnar. Á vi
ssan máta eru niðurstöðurnar heimsíðungi vonbrigði - en engu að síður skýr mynd af háttum þjóðarinnar á þessum athyglisverðu tímum.
Þetta kom í ljós:
Langflestir notuðu gervijólatré - 39,5% svarenda.
Grenitengundir höfðu 31,6% - þar af 18.4% rauðgreni.
Fura prýddi jól 15,8% lesenda - og þinur 5,3%
Aðrar tegundir jólatrjáa 7,8%.
Svona var nú það. Ekki er vitað til að gervijólatré séu lengur framleidd á Íslandi. Hér er því sýnilega markaður fyrir meiri ræktun jólatrjáa og markvissa markaðssetningu þeirra.
En svo má líka taka upp aftur smíði hinna gömlu "gervi-jólatrjáa" sem báru á sínum tíma mikinn fögnuð mörgum kynslóðum. Þau má sannarlega smíða úr alíslenskum trjáviði. Sú verkþekking má heldur ekki glatast!