Senda á Facebook
23. ágúst 2003

Líður á sumar

Nú líður á sumarið. Um næstu mánaðamót lýkur sumarstarfi Búvélasafnsins. Það hefur verið opið reglulega kl. 12-17 síðan 1. júní. Safnið hefur verið mjög vel sótt í sumar. Hásumargestirnir eru einkum fjölskyldur í sumarleyfi. Töluvert er um erlenda gesti. Frá og með 1. september er safnið opið eftir þörfum. Þá er væntanlegum gestum bent á að hafa samband í síma LBH 433 7000. Sambýli safnsins við Ullarselið, er býður hágæðahandverk, einkum úr ull,  og Kertaljósið, sem er smáverslun, kertagerð og kaffihús, gerir heimsóknina upplagða afþreyingu fyrir ferðamenn af ýmsum gerðum.