15. ágúst 2003
Virðulegur gestur Búvélasafnsins
Sl. fimmtudag kom landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson TF-NPK "í heimsókn" á Búvélasafnið; með sínum einkennandi drunum sveif þessi öldungur yfir rétt húsþökin og heiðraði þannig safnið mikilfenglega með örstuttri nærveru sinni. Var heimsóknin liður í þeirri hátíð sem staðið hefur með hringflugi vélarinnar um landið síðustu dagana. Búvélasafnið/LBH var síðasti "viðkomustaðurinn" á leið vélarinnar til Reykjavíkur.
Páll Sveinsson er á sinn máta gagnmerk búvél og er á ríflega Farmals-aldri. Með henni uxu afköst við landbætur og landnám Landgræðslunnar til stórra muna, verk sem menn hófu með höndunum einum, t.d. við hleðslu varnargarða gegn sandfoki. Landgræðsluflugvél þessi er því eins og margir gripir Búvélasafnsins á jörðu niðri dæmi um sambland hugvits og verktækni sem skilaði samfélaginu fram. Samgönguþáttur flugvélarinnar er stórmerkur og þar er hún í hópi með fornjeppunum okkar.
Búvélasafnið er þakklátt Landgræðslunni fyrir hina stuttu en skemmtilegu heimsókn og óskar landgræðslumönnum á láði og í lofti allra heilla í framtíðnni.