3. nóvember 2009
Helgríma var það ...
Fyrir nokkru var hér á síðunni spurt um verkfæri - hvað væri. Nokkurrar spennu hefur gætt meðal lesenda síðunnar um það hvaða þarna hafi verið á ferð. Þess skal líka getið að a.m.k. einn lesandi gat sér til um hvert verkfærið væri. Lausnin var helgríma.

Þetta áhald ætti líklega betur heima á síðum glæpasagnakilja en meðal búsáhalda.
En svona var nú lífið, Guðrún mín. Maðurinn gefur sauðkindinni líf á vorin en sauðkindin manninum líf á haustin - var skrifað einu sinni.
Þetta búsáhald var liður í þeirri hringrás. Notkun þess er nú fyrir löngu aflögð. Þess sakna fáir.