Senda á Facebook
30. október 2009

Ferguson-hjólbörur

Fyrir all-löngu lofaði heimsíðungur því að ekki skyldi minnst á Ferguson á hér á síðunni um góða stund. En enginn hlutur er "æs-seif" eins og formaður sauðfjárræktarfélagsins sagði hérna um daginn þegar hann í misgripum tók hnappinn af hrútnum sem lofað hafði verið lífi eftir skoðun sónarmanna sveitarinnar.

 

Á dögunum barst Landbúnaðarsafni vænn pappakassi undan Bónusfrönskum 8x1500g hálfur með gömlum véla- og bútæknibæklingum. Segir nú af innihaldi kassans:

 

Þarna var m.a. gulsvartur pési, um 40x50 cm, sem heitir  Accessories for easier farming. Yfirskrift hans var Ferguson gives you the right accessory for the right job. Sem sagt að Ferguson byði réttu græjurnar fyrir rétta verkið.

 

Sannarlega var þetta í anda gamla Harrys Fergusonar að búa út vél sem hentaði öllum bændum veraldar - þannig að tryggja mætti næga matvælaframleiðslu sem aftur sæi til þess að kommúnisma mætti eyða úr veröldinni. Sú var m.a. lífssýn þessa merkilega Íra.

 

En aftur að gulsvarta pésanum í Bónus-kassanum. Ein græjan sem þar er sýnd kom heimsíðungi skemmtilega fyrir sjónir. Fylgir myndin af henni hér með:

 

Hún heitir Wheelbarrow conversion set.  Þetta er sem sé búnaður til þess að breyta Ferguson-þrítengisskúffu í hjólbörur, svo komast megi með hana að krángulegum stöðum. Aldeilis eitursnjallt:

 

Með skúffuna fulla af efni er Ferguson ekið léttilega um langvegu. Þegar að þrengslunum kemur er burðarhjólum skotið undir skúffuna, hún látin síga og losuð frá þeim gráa og handföng sett á hana. Til verður vogarstöng á hjólum svo auðveldlega má nú aka hlassinu þangað sem kosið er!

 

Í fljótu bragði man heimsíðungur ekki eftir öðru svo fagurlega sam-hönnuðu hand- og vélverkfæri?   

 

Hvort börur þessar bárust til hjólbörulandsins Íslands veit heimsíðungur ekki. Veist þú til þess? Þær komu alla vega ekki á hirðubýlið sem sá til þess að heimildirnar í Bónuskassanum bærust í Landbúnaðarsafn Íslands ...

 

Engum var Flosi líkur, segjum við þessa dagana; en hér virðist líka mega skipta á nafni hans og Írans hugmyndaríka. 

 

Flosi og Ferguson breyttu veröldinni - hvor með sínum hætti þó.