31. júlí 2003
"Bryndillinn" mættur
Nú á dögunum kom í vörslu Búvélasafnsins fyrsti sæðingabíllinn sem Borgirðingar notuðu - við Sæðingastöðina á Hvanneyri. Það var rétt um miðja síðustu öld. Bíllinn er af gerðinni Dodge (Ambulance); árgerð 1942, furðu vel varðveittur. Hann gekk undir nafninu Bryndillinn. Bílinn á Björn Guðmundsson á Laugum í Reykjadal, en það var Pétur Jónsson vélameistari sem hlutaðist til um komu bílsins í Búvélasafnið og vistun þar.
Bílasöfnun er ekki hlutverk Búvélasafnsins en saga þessa bíls er hluti af tæknisögu landbúnaðarins svo eðlilegt er að bjóða hann velkominn í Búvélasafnið.
Þegar sæðingar hófust í Borgarfirði var vegakerfi sveitanna afskaplega ófullkomið. Það var því nauðsynlegt að hafa dugmikla bíla til þess að koma erfðaefninu á bæina. Þá kom sér vel að hafa Weapon. Auk þess var bíllinn notaður til skólaaksturs, því sæðingaaksturinn var ekki umfangsmikill á þessum byrjunarárum.
Bílnum verður komið fyrir í hinni nýju geymslu Búvélasafnsins.