Álitið er að 239 manns séu að safna dráttarvélum og öðrum búvélum með meira eða minna skipulegum hætti, þar af 237 eða 238 karlmenn. Tölur þessar eru fengnar með þeirri rannsóknaaðferð sem í vísindaheimum kallast "educated guess" og byggist á verklaginu "trial and error". Heimsíðungur er reiðubúinn að gera nánari grein fyrir talningaraðferðinni sé þess óskað - endar f
ellur starfsemi safnsins óbeint undir upplýsingalög.
Að þessu sinni er vakin athygli á starfi tveggja hinna 239 safnara, þeirra bræðranna á Grund í Reykhólasveit, Guðmundar og Unnsteins Ólafssona, en meðfylgjandi mynd er tekin í varpanum hjá þeim skömmu eftir Þorláksmessu sl. sumar.
Þeir bræður hafa safnað öldnum dráttarvélum úr sveit sinni og sýslu, sem og ýmsum verkfærum við þær. Nokkrar dráttarvélanna hafa þeir gert upp og stillt fram til sýningar gestum og gangandi, sjá myndina (sem stækka má með beningu örvar). Þarna má sjá Deutz, Hanomag, Ferguson, Farmal, MF og Nalla ....
Mörg athyglisverð verkfæri eru í safni þeirra sem varpa ljósi á vélvæðingu í Austur-Barð.
Grundarbræður hafa einnig safnað verðmætum fróðleik um vélarnar. Í samvinnu við félaga sína, og þá ekki síst Arnór Grímsson í Króksfjarðarnesi, hafa þeir tekið saman stórmerkilega skrá um komu fyrstu dráttarvélanna á bæi þar í sýslu. Þessa vinnu kynntu þeir Guðmundur og Arnór á fyrsta Forn-traktoranámskeiðinu á Hvanneyri fyrir réttu ári við góðan róm.
Dráttarvélasaga þeirra Reykhælinga er þegar orðin gagnmerkt plagg sem aðeins mun vaxa að verðmæti. Það verður miklivægur hluti búnaðarsögu sýslunnar.
Heimildaöflun þeirra félaganna er öðrum fyrirmynd um að safna fróðleik um vélvæðingu sinnar heimasveitar. Frétst hefur af fleirum sem vinna að hliðstæðum verkum, bæði vestur í Önundarfirði og í Árnessýslu og víðar.
Landbúnaðarsafn hefur áhuga á að heyra af slíku söfunarstarfi. Það hefur líka áhuga á að fá afrit af samantektum eftir því sem við á - til framtíðarvarðveislu og til þess að leggja grunn að heildarmynd vélvæðingar í svietum landsins.
Nú fækkar þeim óðum sem muna komu fyrstu heimilisdráttarvélanna og því mega þessi verk ekki dragast úr hömlu.
En varðandi fjölda vélarsafnara sem nefndur var í upphafi þessa pistils verður hver að nota tölurnar á eigin ábyrgð - því hafa skal það sem réttara reynist ef hvorugt er satt, eins og þjóðskáld okkar þessi árin orðaði það ...