Senda á Facebook
11. október 2009

Um uppruna tegundanna . . .

Frægur maður skrifaði enn frægari bók um uppruna tegundanna. Það sem hér fer á eftir gerir ekki kröfu um sömu frægð eða alheimsáhrif.

 

Hins vegar hefur verið tekið saman að hvaða tegundum forn-dráttarvéla þátttakendur á hinum vinsælu námskeiðum hafa verið að vinna.

 

Tölfræði tveggja síðustu námskeiðanna sýnir þessi hlutföll:

 

 

Taka skal fram að sumir eru með fleiri en eina tegund undir. Hér er miðað við þær tegundir sem þátttakendur nefndu er þeir kynntu sig í upphafi námskeiðs:

 

   Ferguson og MF            44%

   Deutz                           19%

   Farmall og IH                19%

   Ford og Fordson             9%

   Aðrar tegundir               9%

 

Í hópi annarra tegunda eru Allis Chalmers, David Brown og Zetor, en alls voru 43 dráttarvélar greindar til tegundar/gerðar.

 

Eðlilegt er að Ferguson og MF séu tíðast nefndar því af þeim hefur mest selst þegar á heildarsölutölur er litið.

 

Það er hins vegar rétt að vekja athygli áhugamanna á mikilvægi þess að gera öðrum tegundum forndráttarvéla til góða.  Bæði er það góð leið til þess að skapa sér sérstöðu og vekja verðskuldaða athygli á fornvélaþingum - en ekki síður gott framlag til minja- og menningarvörslu í landinu!   

 

Safnið á til dæmis einn Farmall H, sem við mundum þiggja liðveislu við hressingu á eftir sérstökum samningum. Hann er sá eini sem til landsins kom en naut þó gríðarlegra vinsælda meðal bænda vestan hafs!

 

Fleira mætti um þessa tölfræði segja en það bíður betri tíma.