10. október 2009
Fjórða forntraktora-námskeiðið að baki
Fjórða námskeiðið - Forntraktorar; meira en járn og stál - var haldið í dag. Tuttugu áhugasamir forntraktora-menn úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins komu saman og fræddust og fræddu um aðhlynningu og hirðingu forntraktora.

Þarna voru saman komnir miklir og áhugasamir reynsluboltar. Gekk jafningjafræðslan lipurlega en þó máttu leiðbeinendur taka á öllu sínu til þess að svara ýmsum spurningum sem upp komu.
Það dró eiginlega ekki að ráði í sundur með mönnum fyrr en Sigurður Skarphéðinsson, einn fimm leiðbeinenda, komst á flug við að útskýra leyndardóma vökvalyftunnar á Ferguson - þeirrar tækni er olli því að Ferguson skaut öðrum traktorasmiðjum langt aftur fyrir sig (sjá meðf. mynd).
Þá var komið að troðnum kofa og menn skildu hví Sigurður hefur verið kallaður Mr. Ferguson Íslands. Meira að segja heimsíðungur áttaði sig á því hvers vegna plógur aftan í Ferguson fyrir 60 árum gekk sem á lognsævi væri þótt þýfið væri alíslenskt og dráttarvélin steypti stömpum í því. Allt er einfalt þegar maður kann það, heyrðist einhver segja, en Sigurður bara glotti.
Áformað er eitt námskeið enn - vegna mikillar eftirspurnar. Það verður haldið laugardaginn 7. nóv. nk. Verður það síðasta námskeið í þessum flokki í bili að minnsta kosti.
Dragið því ekki að skrá ykkur, þið sem áhuga kunnið að hafa, sjá heimasíðuna www.lbhi.is