Senda á Facebook
8. október 2009

Horfinn heiðursmaður: Hjalti Gestsson

Þjóðlíf þróast sjaldnast fyrir tilstilli dauðra hluta - hluta sem hægt er að setja upp og sýna á safni. Það er frjór hugur og lifandi hönd sem mestu ræður. Þessi einfalda staðreynd rifjast upp fyrir heimsíðungi þegar spyr hann lát Hjalta Gestssonar frá Hæli.

 

Hjalti helgaði landbúnaði og bændum starfskrafta sína. Hann lifði tímana tvenna og tók mikinn þátt í mótun þeirra. Minnast má nokkurra verka.

 

Hjalti Gestsson var ráðgjafi og hollvinur sunnlenskra bænda í hartnær hálfa öld:

 

Hjalti var í hópnum sem lagði grunn að þekkingu landsmanna á súgþurrkun heys með rannsókn sem í raun varð grunnur að leiðbeiningum til bænda um langt árabil. Súgþurrkunin varð ráðandi verktækni um tíma.

 

Hjalti varð einn kennara fyrstu íslensku búfræðikandídatanna, frá Framhaldsdeildinni á Hvanneyri, nú Landbúnaðarháskóla Íslands - og hann er líklega sá síðasti úr þeim hópi er kveður.

 

Hjalti mótaði nýtt verklag varðandi búfjárdóma er lagði grunn að miklum framförum, tiltekið í nautgriparækt.

 

Margt er ónefnt en nafn Hjalta Gestssonar frá Hæli verður ekki auðveldlega skilið frá sögu íslensks landbúnaðar á 20. öld.

 

Hjalti kom í heimsókn að Hvanneyri fyrir rúmu ári og kíkti þá við í Landbúnaðarsafninu. Hann rifjaði upp nokkrar æskuminningar frá Hæli  þar sem við gengum fram hjá torfljáunum og amboðunum gömlu.

 

Ungur hafði Hjalti staðið við orf að sumarlöngum heyskap. Hann nam nýjustu búfræðin við háskóla kóngsins í Kaupmannahöfn. Hann horfði á sunnlenskar sveitir breytast, m.a. fyrir eigin kunnáttu og ævistarf.

 

En þegar hann gekk frá "orfi sínu og slægju" reiknuðu tölvur líklegustu ævinyt kvígukálfanna, og hryggvöðva ásetningslambanna mátti sjá og mæla á myndskjá. Það þurfti ekki lengur að reiða sig á þukl. Heyskortur var horfinn og kornið bylgjaðist á örkrum margra bæja sem varla áttu véltæk tún þegar Hjalti hóf leiðbeiningaferðir sínar um Suðurland í stríðslokin.

 

Landbúnaðarsafn minnist starfa Hjalta Getssonar ráðunauts með virðingu og sendir fjölskyldu hans samúðarkveðju.

 

sjá nánar: http://www.bssl.is/PrentaFrett.asp?aID=4611