Senda á Facebook
26. september 2009

Mjaltaþjónnin tíu ára á Íslandi !

Góðir menn bentu heimsíðungi á það að í dag, 26. september 2009 væru liðin tíu ár síðan fyrsti mjaltaþjónnin var tekinn í notkun hérlendis. Það var að bænum Bjólu í Rangárþingi

 

Mjaltaþjónninn í Bjólu var af gerðinni Lely Astronaut A2. Hann er enn í notkun á sama stað en þar hefur öðrum mjaltaþjóni verið bætt við.

 

Nú eru tugir mjaltaþjóna í notkun hérlendis og sinna kúnum nætur og daga hvert heldur er um jól, páska eða verslunarmannahelgi.

 

Mjaltaþjónn er merkileg smíði. Þar hefur margvíslegri stýritækni verið komið fyrir í einum bás er fer afar mildum flötum um mjólkandi kúna og mjólkar hana þannig að undra nærri fer sogi kálfsins. Kíktu t.d. á meðfylgjandi kvikmynd er sýnir vinnubrögð mjaltaþjóns:

 

http://www.youtube.com/watch?v=1Vo4NJU5wTk 

 

Mjaltaþjónninn hefur þegar skrifað sig inn í þróunarsögu landbúnaðarins. Koma hans breytti fjósverkum. Hún var með sínum hætti hluti þeirra  miklu breytinga sem urðu í íslenskri nautgriparækt um og upp úr síðustu aldamótum og verða sennilega talidar með þeim meiri sem orðið hafa í búgreinnin frá uppahfi búskapar á Íslandi.

 

Það eru bara 82 ár síðan fyrsta mjaltavélin var tekin í notkun hérlendis - á Setbergi við Hafnarfjörð. Ekki líkaði öllum vinnubrögð mjaltavélarinnar og um tíma hættu bændur notkun þeirra. En síðan urðu þær alsiða.

 

Koma mjaltavélarinnar var líklega öllu meiri breyting heldur en koma  mjaltaþjónsins.

 

Enn eru þó til fjós þar sem kýr eru handmjólkaðar.

 

Tækni kemur og fer, er og breytist. Viðhorf okkar mannanna gera það líka. Einu sinni þótti ýmsum karlmönnum það minnkunarverk að setjast undir kú. Mjaltaþjónshaldarar þurfa ekki að hafa áhyggjur af því og löngum hefur það þótt upphefðarstarf að beita og stýra vélum.

 

En þótt menn hafi hlutast til um nautaval og kynbætur nautgripa svo nyt kúnna hefur þrefaldast og útlit þeirra breyst að nokkru marki hefur grunneðli kýrinnar haldist hið sama. Ekki ábyrgist heimsíðungur  þó að mjaltaþjónskýrnar í Bjólu hugsi eins í dag og Setbergskýrnar gerðu þegar Jóhannes Reykdal lét bera fyrstu mjaltavélina inn i Setbergsfjósið 1927.

 

Lífeðli kúnna er þó örugglega mjög svipað - flókið en smá kenjótt undraverk sem gerir miklar kröfur til hirðis og umhverfis en er í staðinn örlátt og gjöfult við réttar aðstæður.

 

Oft verður tæknin ok. Því má gleðjast yfir því hve mannvit og tækniþekking hefur með mjaltaþjóninum náð langt í að þjóna kúnni í samræmi við frumþarfir hennar og eðli. Er þó örugglega ekki komið á leiðarenda í þeim efnum - verður aldrei.

 

En svo var það bara þetta með bankana ...

 

ES: Myndina sem fréttinni fylgir tók Bruno Compagnon og hún er fengin af síðunni http://www.brunocompagnon.com/VACHE-ISLANDE/index.html   sjá frétt á heimasíðu LK www.naut.is