Senda á Facebook
21. september 2009

Forntraktorar - 4. námskeiðið framundan

Nú við haustjafndægur skal minnt á námskeiðið Forntraktorar - meira en járn og stál sem verður haldið í 4. sinn laugardaginn 10. október nk. Skráning fer fram hjá LbhÍ (á www.lbhi.is).

 

Námskeiðið er óðum að fyllast. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 20 manns.

 

Námskeiðsformið verður það sama og var síðasta vor. Námskeiðin reyndust þá geysivinsæl og komust færri að en vildu. 

 

Það er Landbúnaðarsafn, Jörvi og LbhÍ sem sameiginlega standa að námskeiðunum.

 

Grunnhugsunin er sú að draga athygli að forntraktorum sem minjum um mikilvægt skeið í íslensku þjóðlífi, er sýna þarf virðingu í allri meðferð, umönnun og hirðu. Líka er hugað að þeirri dægradvöl sem uppgerð fornvélar getur verið.

 

Námskeiðin eru líka hugsuð sem leið til þess að halda við verkþekkingu og miðla nýrri sem beita má við umönnun hinna sögulegu minja.

 

Form námskeiðanna byggist á jafningjafræðslu auk þess sem kunnáttumenn draga fram sérstaka þætti sem hafa þarf í huga.

 

Við getum lofað skemmtilegu námskeiði, því maður er manns gaman.

 

Skráningarfresturinn styttist - minnum á síðuna www.lbhi.is (... sjá hægra megin á síðunni...) þar sem finna má skráningarleið úr eigin tölvu.