16. júlí 2003
Góð aðsókn á Safnadaginn
Búvélasafnið tók þátt í Safnadeginum sunnudaginn 13. júlí sl. Nokkrar dráttarvélar voru leystar út og liðkaðar. Glöddu þær gesti. Aðsókn gesta var prýðileg. Þennan dag var aðgangur að safninu ókeypis.
Til stóð að gera sextugs-afmæli ræktunarýtunnar sérstök skil á þessum degi, en af tæknilegum ástæðum varð að fresta þeim þætti þangað til síðar í sumar. Verður sá atburður auglýstur er að honum kemur.