Senda á Facebook
12. september 2009

Ný grein í Plógi - vefriti safnsins

Með þessum orðum er vakin athygli á því að ný grein hefur verið birt í Plógi - vefriti safnsins. Greinin heitir Íslenskir jarðræktarhættir á 18. og 19. öld.  

 

Greinin er frumefni erindis sem undirritaður hélt á málþingi Félags um 18. aldar fræði og Sögufélags Borgarfjarðar í Borgarnesi þann 4. september sl.

Þú finnur greinina með því að örva  Plóg á síðunni hér til vinstri og síðan  A-deild  í texta miðdálks þegar Plóg-glugginn hefur opnast. Þá birtist efnisyfirlit A-deildarinnar og þú örvar titil greinarinnar.

 

Ögn snúið, kann þér að finnast, en á að takast fyrirhafnarlítið!

 

Njóttu vel - en mundu að seint koma öll sagnakurlin til grafarinnar.

 

Bjarni Guðmundsson

 

bjarnig@lbhi.is

GSM 894 6368