Senda á Facebook
29. ágúst 2009

Merkileg búvélaferja á Breiðafirði

Að þessu sinni er sagt frá og birt mynd af athyglisverðri ferju sem nú hvílir lúin borð sín skammt frá höfninni á Stað á Reykjanesi.

 

Ferjan (pramminn) er bæði merkileg heimild um skipasmíði þar vestra og þau ráð er bændur brugðu á til þess að greiða ræktunarvélum för um sveitir þegar þær komu fyrst til sögunnar.

 

Að sjálfsögðu vildu eyjabændur einnig njóta verka ræktunarvéla við túnrækt sína og þá var sjóleiðin ein fær til flestra þeirra.

 

 

 

Heimsíðungur leitaði til Aðalsteins Valdimarssonar frá Hvallátrum, forsvarsmanns breiðfirska bátasafnsins á Reykhólum, sem sagði honum sögu ferjunnar við Stað:

 

Aðalsteinn kvað frænda sinn, Aðalstein Aðalsteinsson í Hvallátrum, hafa smíðað prammann um 1960. Pramminn var smíðaður til þess að flytja International TD 6 beltavél út til eyjabænda.  Meðfylgjandi mynd ÁHB gefur góða hugmynd um gerð og stærð prammans (bentu á myndina til stækkunar).

 

Látramenn keyptu ýtuna af Reyknesingum sem þá voru að fá sér stærri ýtu, TD 9. Grái Ferguson og fleiri vélar voru líka ferjaðar á prammanum og aðrar vinnuvélar á milli eyja til heyskapar.

 

Sömuleiðis var pramminn notaður nokkuð til þess að ferja hey. Pramminn var ákaflega þungur í drætti og varð ekki notaður nema í kyrrum sjó.

 

Léttara reyndist að draga hann afturábak, sagði Aðalsteinn, sem hefur áform uppi um að koma prammanum undan skemmdum með þarfir Bátasafnsins við Breiðafjörð á Reykhólum í huga.

  

Ferjan/pramminn verður góð viðbót við hið afar merkilega bátasafn sem Aðalsteinn og menn hans hafa komið upp á Reykhólum. Heimsíðungur hvetur lesanda til þess að fylgjast með verkmenningarstarfinu sem þar er unnið, sjá www.reykholar.is/stjornsysla/stofnanir/Batasafn_Breidafjardar.

 

Vitað er að víðar við landið voru slíkar ferjur/prammar notaðir til vélaflutninga, m.a. um Vestfirði. Voru þeir flestir heimasmíðaðir.