Senda á Facebook
23. ágúst 2009

Elsti traktor Íslands níræður

Í þessum góða mánuði varð elsti traktor Íslands níræður. Áður en lengra er haldið verður heimsíðungur þó að gera þann fyrirvara að um nákvæman framleiðslutíma annars traktors, sem er álíka gamall, er ekki vitað. Er þá átt við Austin-traktorinn sem einnig hvílir lúin hjól í safninu á Hvanneyri.

 

Afmælisöldungurinn er hins vegar Fordson-traktor Landbúnaðarsafnsins, þess sem hann Páll Stefánsson frá Þverá flutti inn, sennilega árið 1920, að því er Árni G. Eylands taldi (sjá Búvélar og ræktun, bls. 159).

 

Hann Þóroddur Árnason á Neskaupstað greindi aldur Fordson-traktorsins eftir mótornúmeri og komast að því að hann mundi hafa verið smíðaður í ágúst 1919. Heimsíðungur er ekki vanur að efast um það sem Þóroddur segir og skrifar og því er hér um að ræða merkileg tímamót, sem vel má halda uppá.

 

Um nokkurt skeið hefur heimsíðungur ekki frétt af því hvort enn muni leikið með fótböll á Akranesi. Litla gleði hefur hann því sótt í fréttir af gengi manna hans þar er áður svifu gulir og glaðir um völlu með böll (e. ball) sinn áleiðis jafnan í mark andstæðinga...

 

Gleði heimsíðungs beinist því að afmæli þessarar öldnu Fordson-vélar, sem beið það hlutskipti nýrrar að standa ónotuð í porti suðrí Reykjavík í full fimm ár. Það vildi enginn sjá hana því það var þúfnabaninn frá Mannheim sem sviðsljóssins naut.

 

Þúfnabaninn átti að leysa þúfnavanda nær þúsund ára þjóðlífs til frambúðar - menn höfðu enda verið að leita að þúfnasléttunarvél og þarna var hún talin vera kominn. Í algleymi þúfnabönunarinnar komu menn ekki auga á það að "léttur" traktor sem Fordson gat unnið ýmis önnur búverk líka.

 

Lesa má um þennan merka traktor t.d. á síðunni http://en.wikipedia.org/wiki/Fordson_tractor

 

En rann móðurinn af íslenskum þúfnabönunum og tími Fordson og kollega hans kom:

 

Búnaðarfélög keyptu Fordson-traktora sem tóku að fara um sveitir með plóg, diskaherfi, rótherfi og jafnvel fleiri tæki. Þeir unnu bændum flög, sem ýmist uxu á ný sem græðisléttur eða sáðsléttur. Til urðu fær tún fyrir hesta-heyvinnuvélar og heyfengurinn óx.

 

Saga Fordson á Íslandi er líka merkileg. Heimsíðungur hyggst strjúka rykið af gömlum blöðum og tína saman punkta úr henni þegar "haustar að og kvöldin gerast löng " eins og segir í gömlu dægurljóði. Ef til vill birtast línur um það hér á síðunni síðar.

 

Sú merka dráttarvél, gráa Ferguson, sem í ár hefur verið mærð að verðleikum, byggði velgengni sína og frægð að hluta á Fordson-traktornum (Fordson F), og samstarfi Íranna Harry Ferguson og Henry Ford.

 

Frá því er m.a. sagt í bókinni . . . og svo kom Ferguson.

 

Ef þú, ágæti lesandi, lumar á sögu eða öðrum fróðleik um Fordson í íslenskri sveit, kæmi mér vel að heyra eða sjá frá þér. Við getum þannig lagt í púkk...