17. ágúst 2009
Lýst eftir gömlum ljáum
Heimsíðungur vinnur að bókverki um slátt á Íslandi - þessu verki sem fáir orffærir "aðilar" komust undan 10 vikur á hverju sumri í liðlega þúsund ár. Það að leysa grasið frá rót var forsenda heyskaparins sem aftur varð mikilvægur þáttur þess að lifa af komandi vetur.

Liður í verkefninu er dálítil rannsókn á ljáum sem notaðir hafa verið hérlendis.
Heimsíðungur hefur þegar kannað ágæt ljáasöfn þriggja byggðasafna svo og Þjóðminjasafnsins og fræðst verulega.
En . . .
. . . heimsíðungur telur sig vita að á hirðuheimilum kunni ljáir frá liðinni öld (öldum) af ýmsum ástæðum að hafa safnast fyrir - undir þaksúð eða úti í skemmu. Meðal þeirra gætu leynst verðmæt eintök:
Veist þú um slíka staði?
Heimsíðungur er orðinn mjög vel settur með fróðleik um Eylandsljáina - en þeir þekkjast á því að nafnið BRUSLETTO er slegið inn í þjó þeirra.
Aðrar gerðir ljáa og eldri, þar með taldir bakkaljáirnir, eru hins vegar áhugaverðar og þeim mun eldri - þeim mun betra.
Ljáina þarf heimsíðungur að mæla, vega og ljósmynda. Landbúnaðarsafn þiggur hins vegar merka ljái til varðveislu og sýningar.
Raunar leynist þar draumur um að koma upp dálitlu safni ljáa frá ýmsum tímum Íslandssögunnar komandi kynslóðum til fróðleiks og menningarauka.
Heitið er á lesendur að bregðast vel við bóninni og hafa samband telji þeir sig hafa nokkru að miðla. Um allt getur munað.
Bestu þakkir og ágúst-kveðja
Bjarni Guðmundsson
s. 894 6368
bjarnig@lbhi.is