Senda á Facebook
15. ágúst 2009

Norrænir bændur heimsækja Landbúnaðarsafnið

Í liðinni viku heimsóttu 120 norrænir bændur Landbúnaðarsafnið. Þeir voru á árlegum fundi NBC, sem eru samtök þeirra. Að þessu sinni var fundurinn haldinn í Reykjavík.  (sjá ww.bondi.is/pages/23/newsid/706 ).  Guðrún Bjarnadóttir safnvörður tók á móti hópnum og sýndi þeim safnið. Voru gestirnir mjög ánægðir með heimsóknina að sögn Tjörva Bjarnasonar hjá BÍ sem stýrði kynnisferð þeirra um Borgarfjörð.

 

Þetta er stærsti erlendi gestahópur safnsins þetta árið. Norðurlandagestir eru sérlega áhugaverðir gestir því svo mjög hafa norðurlöndin, og þá einkum Danmörk og Noregur, mótað verktækni til sveita hér á landi í gegnum verknám Íslandinga þar og verkfærakaup þaðan.

 

Gestafjöldi safnsins í júli var um 1650 og mun það vera met frá því safnið var opnað 1987. Það sem af er ágúst eru gestir orðnir um 600. Nú er gestakomum tekið að fækka mjög enda skólar að hefjast og sumarleyfum að ljúka.

 

Safnið verður þó opið daglega áfram kl. 12-17 og einnig á þeim tíma er Ullarselið er opið, en Ullarselið annast einnig afgreiðslu gesta safnsins eftir þörfum.