30. júní 2003
Búvélasafnið stækkar
Í júnímánuði var tekin í notkun viðbót við sýningarhúsnæði Búvélasafnsins. Salur sem áður hýsti verkstæðiskennslu Landbúnaðarháskólans var rýmdur og lagfærður, en kennslan verður nú færð í nýlegt hús Bútæknideildar Rala. Í hinu nýja húsnæði munum við hægt og sígandi koma fyrir móttöku og forsal safnsins í samræmi við verkáætlun Björns G. Björnssonar hjá List & Sögu. Þar hefur þegar verið komið fyrir jarðvinnsluáhöldum Torfa í Ólafsdal og fleira er í undirbúningi.
Með þessum breytingum vex sýningarhúsnæði Búvélasafnsins til mikilla muna. Þannig verður unnt að rýmka á sýningargripum og gera það auðskoðanlegra fyrir gesti.
Í júnímánuði var einnig tekið í notkun hið nýja geymsluhúsnæði Búvélasafnsins sem áður var sagt frá. Tekst þar að koma í geymslu fjölmörgum gripum sem áður voru í misjafnri vist. Segjum meira frá því síðar.