26. júlí 2009
Gestir Landbúnaðarsafns og gestaþraut safnsins
Í liðinni viku kom þrjúþúsundasti gestur ársins í Landbúnaðarsafnið. Aðsókn hefur verið mikil í sumar, og meiri en á síðasta ári sem þó taldist í líflegra lagi hvað aðsókn snerti.
Gestir safnsins eru mun raunar fleiri þar sem ekki hafa enn verið taldir með þeir gestir sem Guðmundur Hallgrímsson leiðir um safnið sem lið í "sveitafitness"-dagskrá sinni, en þeir skipta hundruðum það sem af er árinu.
Þessar vikurnar ber mest á fjölskyldum í sumarleyfi. Erlendir gestir, einkum bændafólk, hafa verið allmargir að venju.
Gestaþraut safnsins, sem sett var upp í sumarbyrjun, hefur mælst vel fyrir. Hún felst í því að finna orð í orðtök þar sem ýmsir gripir safnsins koma við sögu. Dæmi um eina slíka er t.d. Að leggja hönd á p... og að sjálfsögðu er sú þrautin tengd öðrum plóganna frá Ólafsdal sem til sýnis eru í safninu.
Margir una lengi við að leysa gestaþrautina og sýna við það býsna mikla málkunnáttu.
Það er tilgangur þrautarinnar er að efla skilning yngri gestanna á þessari skemmtilegu hlið íslenskrar tungu - myndhverfum orðtökum.
Safnið er opið daglega kl. 12-17 og verður svo til 1. september.