20. júlí 2009
Sjónvarpsfrétt um Ferguson
Heimsíðungur étur oní sig það sem hann áður skrifaði um að linna mundi tuði hans um Ferguson. Hann hyggst hins vegar verða við ábendingu staðfasts lesanda síðunnar um að vísa til fréttar um Ferguson sem RÚV/Sjónvarp birti gærkvöld, sunnudagskvöldið 19. júlí. Fréttina má finna á eftirfarandi slóð.
Athygli Sjónvarpsins er þökkuð og metin:
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4467300/2009/07/19/12/
Veitið því sérstaka athygli hve vel fer á með Fergusyni og Erlendi vélameistara Sigurðssyni þar sem þeir dansa dráttarvélar-ballett við fjórgengishrynjandi í sumarblíðunni á Hvanneyrarhlaði undir lok fréttarinnar.
Fréttamaðurinn Guðmundur Bolvíkingur gat heldur ekki orða bundist eins og þið munuð heyra.
Síðan mun síðan taka að fjalla um aðrar síður búnaðarsögunnar en Ferguson.