Senda á Facebook
18. júlí 2009

Firna vel heppnaður Ferguson dagur á Hvanneyri

Ferguson dagurinn tókst firnavel. Nær 400 gestir mættu og nutu tilverunnar í einstakri blíðu - hægviðri og steikjandi sól. Nær 30 forn-Fergusonar mættu til sýningar og skrúðaksturs, m.a. nokkrir af fyrstu árgerðinni, 1949.

 

Valdir voru 3 fegurst uppgerðir Fergusonarnir á svæðinu og eigendum þeirra veittar viðurkenningar. Þessir hlutu viðurkenningar - bókina ... og svo kom Ferguson: 

 

Albert Baldursson með Ferguson frá Páfastöðum, Skag., TE-A20 árgerð 1952

Magnús Ingimarsson með Ferguson frá Kjalardal, Borg., TE-A20 1954

Þórður Stefánsson með Massey-Ferguson frá Arnheiðarstöðum, Borg. o.v. MF-135 1974. 

 

Skrúðekið var um Hvanneyrarfit - ægifagurt svæði undan Hvanneyri, og síðan inn í Ferjukot þar sem Þorkell Fjeldsted tók á móti hópnum eins og honum einum er lagið. Akstrinum stjórnaði Haukur Júlíusson á stílhreinan máta. Ragnar Jónasson kynnti Ferguson félagið en það er hópur áhugamanna um Ferguson (www.ferguson-felagid.com ).

 

Sjálfboðahópur seldi vöfflur og aðrar veitingar í Halldórsfjósi til fjáröflunar fyrir safnið. Linnti þar ekki spurn eftir veitingum frá kl. 13 og langt fram á 6. tímann. 

 

Bjarni Guðmundsson kynnti bók sína ... og svo kom Ferguson, en hún kom út í dag hjá Uppheimum hf á Akranesi. Bókin var til sölu á staðnum og hlaut hún góðar viðtökur. Hana má nú kaupa í vefversluninni á www.uppheimar.is

 

Rúsínan í pylsuendanum var svo keppnin Ull í Fat 2009 sem Ullarselið annaðist. Það orð hefur farið af konunum þar að ekkert lið úr öðrum landshlutum lagði í að etja við þær kappi. Þær skipuði fram tveimur liðum og sigraði annað þeirra, eins og glöggir geta í ráðið. Gerðu þær ullarsessu í Ferguson 1949, sem þær síðan færðu Landbúnaðarsafninu að gjöf.

 

Dagurinn varð hinn ánægjulegasti - og munaði þar hvað mest um einstaka veðurblíðu sem máttarvöldunum er sérstaklega þakkað fyrir ...

 

Öllum öðrum er lögðu hönd á plóg við samkomu þessa - sem og gestunum fjölmörgu - er þakkað framlagið.