17. júlí 2009
Ferguson-bókin er komin út !
Það tilkynnist hér með að bókin ... og svo kom Ferguson er komin út. Forlagið Uppheimar á Akranesi gefur hana út, sjá www.uppheimar.is
Bókin verður k
ynnt á Ferguson deginum á Hvanneyri á morgun og þar verður hún einnig til sölu.
Hluti ágóða af sölu bókarinnar rennur til Landbúnaðarsafns Íslands.
Bókin ... og svo kom Ferguson geymir sögur um gráa Ferguson í máli og myndum. Auk höfundar, Bjarna Guðmundssonar, skrifa tíu valinkunnir menn úr öllum landshlutum minningar sínar um þessa merkilegu dráttarvél.
Urmull mynda er í bókinni og hafa fæstar þeirra birst opinberlega áður hérlendis. Bókin er tæplega 200 blaðsíður að stærð.