Senda á Facebook
15. júlí 2009

Ull í fat á Fergusondegi

Næstkomandi laugardag, 18. júlí,  verður landskeppnin Ull í fat 2009 haldin á Hvanneyri samhliða Ferguson-deginum. Það er Ullarselið sem stendur fyrir keppninni að þessu sinni sem fara mun fram í kálfafjósi Halldórsfjóss - hinu væntanlega húsnæði Landbúnaðarsafns Íslands.

 

Þarna mun verða háð alvörukeppni í því að vinna ull í fat - frá hráefni til fullunninnar vöru. Keppnin hefst kl. 13.30 og hún gæti staðið fram undir kl. 16.

 

Þarna munu takast á tóvinnukonur sem heldur betur kunna til verka og verður ekkert gefið eftir. Heimsíðungur hefur haft njósn af því að fatið, sem vinna skal úr ullinni að þessu sinni, sé ekki með öllu ótengt Ferguson, og hafa eftirfarandi getgátur borist honum

 

- vatnskassatrefill

- blöndungss(m)okkur

- húddsjal

- ullaryfirbreiðsla í anda strigayfirbreiðslunnar frægu frá miðri síðustu öld

- ljósahetta

- stýrishlíf

- flöskuvermir (fyrir ekil) í lengri ferðum

- rasspúði

- geymisvermir

- tvíþumla ökuvettlingar ....

 

Missið ekki af hörkukeppni og þjóðlegum menningarviðburði á vegum Ullarselsins, sjá www.ull.is