Senda á Facebook
14. júlí 2009

Úti var nú öll hans von ...

Heimsíðungi fyrirgefst vonandi að hann skuli vera með Ferguson á heilanum þessa dagana, en það er eiginlega vegna Ferguson-dagsins nk. laugardag. Að honum liðnum verður annað tekið fyrir.

 

Á dögunum sendi heiðurskona á Suðurlandi safninu ljósmyndir af Ferguson heimilisins að störfum árið 1952, m.a. við setningu kartaflna með íslenskum Ferguson-setjara. Myndunum fylgdi greinargott bréf með skýringum...

 

... og þar með talin ein vísa um bónda í sveit hennar sem var svo heppinn að eignast fjórar dætur en átti leyndan draum um að eignast syni líka.

 

Þá kvað nágranninn:

 

Úti var nú öll hans von

að eignast nokkra syni

þá fékk hann sér bara Ferguson

frægan af ensku kyni ...

 

Einn gestur safnsins hafði að vísu lært vísuna með orðinu fínan í síðustu línunni...

 

Ferguson-áhugamenn eru þegar farnir að koma með Gránur sínar að Hvanneyri, tilbúnir að sýna gripi sína. Við hvetjum sem flesta til að slást í hópinn á laugardaginn...