13. júlí 2009
Átt þú ferðafæra Fergusonvél?
Ja, þá er ekkert annað en að bregða sér á henni/með hana á Ferguson-daginn á Hvanneyri næstkomandi laugardag, 18. júlí. Þar verður landsmót Ferguson-unnenda, haldið í tilefni sextugsafmælis þessara
véla á Íslandi.
Mottó mótsins er maðurinn einn er ei nema hálfur - með Ferguson er hann miklu meira en hann sjálfur, og þá sérstaklega ef hann hefur hæfilegt verkfæri aftan í sínum Ferguson.
Allir eru velkomnir með vélar sínar - Hvanneyrarhlaðið getur tekið við mörgum vélum. Ýmislegt verður á dagskrá ... sem sagt verður frá næstu daga.
Stuðningshópur Landbúnaðarsafns mun bjóða kaffi og vöfflur með rabarbarasultu - andvirðið rennur til eflingar safninu ... meira á morgun...