12. júlí 2009
263 gestir á safnadegi
Sólin bakaði Borgarfjörð í dag. Hitinn náði sléttum 17,9°C og heyþurrkur var sá langbesti sem af er þessu sumri. Heimsíðungur komst hjá því að hugsa um hörmungar Skagamanna í fótbolta en tók með sínu fólki þess í stað á móti 263 gestum á Safnadegi.
S
taðurinn skartaði sínu fegursta. Farin var söguganga um Gamla staðinn á Hvanneyri þar sem liðlega 40 manns slógust í för og hann Erlendur Sigurðsson tók á móti gestum í safngeymslunni.
Ónefnt er þá að safnið var opið í boði samfélagsins (Borgarbyggðar og ríkissjóðs + NN) og undu margir þar lengi við söguskoðun og upprifjun gamalla tíma.
Þrír gestir færðu safninu verðmæta gripi forna: Ljósmynd af flotgröfunni frægu sem lækkað vatnsborð mýra í Skagafirði, Þykkvabæ og Ölfusi á síðustu dögum Danakónga yfir Íslandi, þegnum þeirra til þæginda við engjaslátt; íslenskað Herkules-sláttuvélarplakat frá þeim tíma er Bretar hernámu Ísland og mjaltavélarhluta frá árunum þegar Ísland gekk í Nató og kúasæðingar voru á byrjunarstigi.
Landbúnaðarsafn á nefnilega vildarvini víða um land sem leggja því lið reglulega. Safninu er því sérstök ánægja að opna dyr sínar fyrir þeim og fleirum á sólardögum sem þessum, en um leið þakklátt fyrir hugulsemi þeirra og stuðning...
Og nú söfnum við kröftum fyrir næsta laugardag, 18. júlí, þegar safnið með samstarfsaðilum sínum hyggst halda Ferguson-dag. Allir Ferguson-eigendur eru þá boðnir velkomnir með Gránur sínar og Rauðkur að Hvanneyri.
Samtímis mun Ullarselið efna til landskeppninnar Ull í fat.
Þá verður mikið um að vera á Hvanneyri. Fylgist með nánari auglýsingum.....