Íslenski safnadagurinn er nk. sunnudag. Landbúnaðarsafn býður upp á þrennt:
- Sögugöngu um Gamla skólastaðinn
- Heimsókn í geymslur safnsins
- Aðgang að safninu í boði samfélagsins

Nánar er frá dagskránni sagt hér á eftir:
Íslenski safnadagurinn er næstkomandi sunnudag, 12. júlí. Dagskrá Landbúnaðarsafns Íslands þann dag er þessi:
Boðið verður upp á sögugöngu um Gamla skólastaðinn á Hvanneyri kl. 14. Á léttri göngu verður sagt frá hinu einstaka húsasafni sem þar er frá fyrstu árum síðustu aldar og nánasta umhverfi húsanna – Hvanneyrarkirkju og skólahúsunum sem eru verk þeirra húsameistaranna, Rögnvaldar Ólafssonar og Guðjóns Samúelssonar.
Gömlu húsin á Hvanneyri móta einstaka staðarmynd og þau sjást víða að úr héraðinu, m.a. af þjóðveginum um Borgarnes og norður um. Byggingarnar eru merkileg dæmi íslenskrar húsagerðarlistar á fyrstu árum heimastjórnar.
Húsin geyma líka sögu eins elsta skóla á landinu, en á Hvanneyri hefur skólastarf verið í 120 ár. Sögumaður á göngunni verður Bjarni Guðmundsson.
Landbúnaðarsafnið á mikið safn búvéla og tækja í geymslum sínum. Í tilefni Safnadagsins 2009 verður áhugasömum gestum boðið að kíkja í geymslur safnsins.
Þar verður Erlendur Sigurðsson vélameistari safnsins og mikill fróðleiksbrunnur um fornar vélar til leiðsagnar á tímabilinu kl. 13.30-17. Erlendur er einn fjölfróðasti maðurinn um þessa gripi og hann hefur átt mikinn þátt í söfnun þeirra og aðhlynningu.
Á Safnadeginum er tilvalið tækifæri fyrir vélsagnamenn, véladellukarla, forntraktoramenn, og venjulega áhugamenn um búvélasögu 20. aldar að kíkja við, skoða þessa gripi safnsins og spjalla við Erlend.
Í geymslum safnsins eru margar einkennisbúvélar síðustu aldar sem og nokkur furðuverkfæri, sem enn hafa ekki fengið rými í sýningarsölum Landbúnaðarsafns. Önnur bíða aðhlynningar.
Landbúnaðarsafnið verður opið kl. 12-17 á Safnadaginn og er aðgangur ókeypis þann dag í boði samfélagsins. Leiðsögn verður veitt þar eftir óskum og þörfum gesta.
Ullarselið á Hvanneyri er á sínum stað með hið afar vandaða vöruframboð sitt sem æ fleiri hafa kynnst, innlendir sem erlendir. Þar mun borgfirskt handverksfólk taka á móti gestum og viðskiptavinum.