6. júlí 2009
Nú styttist í Ferguson-daginn !
Landbúnaðarsafn tilkynnir að nú styttist óðum í Ferguson-daginn sem margir áhugasamir Gránu-félagar hafa beðið með óþreyju. Dagurinn er laugardagurinn 18. júlí nk.
Dagskrá er í undirbúningi. Strax skal þó tekið fram að þennan dag eru allir Ferguson-eigendur velkomnir með gripi sína að Hvanneyri, hvort sem þeir eru gráir, gylltir eða rauðir. Þar munu menn sýna sig og sína, og sjá aðra og gripi þeirra.
Með safninu standa að dagskránni Jörvi hf og Ferguson-félagið.
Sama dag fer fram á Hvanneyri landskeppnin Ull í fat 2009, sem Ullarselið annast að þessu sinni.
Fylgist með nánari tilkynningum á næstu dögum.