Á undanförnum mánuðum hefur heimsíðungur verið að sanka saman myndum vegna sagnabókar um Ferguson dráttarvélarnar, sem vonandi kemur út í næsta mánuði. Heimsíðungur hefur notið aðstoðar afar margra velgjörðar- og hirðumanna vítt um land við myndaöflunina.
Allmikið myndefni hefur safnast. Sumt mun verða notað í nefndri bók en annað verður geymt með þarfir seinni tíma í huga.
Áður en lengra er haldið skal öllum þakkað sem brugðist hafa vel við bón og lagt lið.
Myndin, sem hér fylgir, er meira en hálfrar aldar. Hún sýnir Berg á Felli í Dýrafirði, ýta saman heyi með Fergusonvél. Hesturinn Skola er með rakstrarvélina ögn fjær og svo rakar Emilía, kona Bergs, Sigurðardóttir, þar enn fjær. Snotrar kúrur undir hærum sjást í fjarska.
Myndin sýnir horfna þjóðhætti - blika má á myndina til þess að sjá hana stærri.
Myndasöfnunin undanfarið hefur áréttað tvennt:
1. Það má vera slök mynd, hvað gæði snertir, sem ekki segir meira heldur en löng lýsing í orðum. Verið ekki feimin við að vekja athygli á myndum sem þið kunnið að eiga í fórum ykkar, eða sem þið vitið um.
2. Hjá almenningi víða um land eru til afar góðar myndir sem varpa ljósi á verkhætti á upphafstímum vélaaldar í sveitum:
a. Haldið þessum myndum til haga, skráið skýringar við þær á meðan enn má ná til öruggra heimildarmanna.
b. Landbúnaðarsafn þiggur myndir til geymslu, hvort heldur eru frumgerðir þeirra, eftirtökur eða skannaðar myndir (upplausnin þarf að vera amk. 300 dílar við fulla stærð myndar). Einnig skal bent á Ljósmyndasafn Íslands á Þjóðminjasafni.
c. Myndirnar geta orðið að miklu gagni þegar tæknisaga landbúnaðarins eða einstakir kaflar hennar verða skráðir.
Mynd segir meira en mörg orð ... sbr. myndin af heyskapnum á Felli í Dýrafirði! Myndin þarf heldur ekki að vera mjög gömul til þess að segja sögu mikilla breytinga ... og svo verður hún gömul !