25. júní 2009
Brúarkrókar
Nýverið heimsótti hópur aldraðra Sunnlendinga Landbúnaðarsafnið. Eins og oft er með slíka hópa bera þeir með sér gríðarlega mikla þekkingu á sögu verkhátta, áhalda og verkfæra. Þarna var engin undantekning á því.
Einn úr hópnum spurði heimsíðung hvort hann væri með brúarkróka í safninu. Heimsíðungur varð að viðurkenna fávisku sína og síðan það að í safninu væru engir brúarkrókar.
Að vísu varð það heimsíðungi örlítil huggun að brúarkrókar munu heldur ekki vera til í einu virtasta byggðasafni landsins að því er spyrjandinn aldni tjáði honum.
Spyrjandinn hafði hins vegar góð orð um að smíða tvenn pör króka og færa söfnum þessum!
Brúarkrókar eru áhaldspar sem notað var til þess að draga ristar torfur (sniddu ofl.) í engjabrýr á slætti, en þær þurfti að gera til þess að komast um votlend engjalönd - voru eins konar vegir um þau.
Í grasgefnari engjasveitum hentu menn einnig nýslegnu heyi í verstu pælurnar til brúargerðar og þannig gátu menn og hestar flotið yfir.
Að lýsingu heimildarmanns voru brúarkrókur tréhandfang, gjarnan krókbogin viðargrein líkt og notuð var í heynál, á enda járnstangar sem beygð var í krók við endann.
Meðfylgjandi riss er gert eftir lýsingu hins sunnlenska heimildarmanns á brúarkrókum og notkun þeirra.
Og þá er það bara spurningin hvort einhver á enn brúarkróka eða hefur haft kynni af notkun þeirra?