Senda á Facebook
14. júní 2009

Kæzt á Kanínudegi ...

Fjöldi manns lagði leið sína að Hvanneyri síðastliðinn laugardag til að taka þátt í degi kanínunnar. Allan daginn fóru fram fræðslufyrirlestrar þar sem fullt var út úr dyrum.

 

Meðal fyrirlesara voru Guðni Indriðason er fjallaði almennt um kanínurækt og eiginleika kanína, Jón Eiríksson frá Vorsabæ flutti sögu loðkanínuræktar á Íslandi, Ingibjörg (Rannsí) Ingólfsdóttir í Ásgarði greindi frá sinni ræktun og reynslu og Sigrún Elíasdóttir fór yfir stöðu ræktunar í dag. 

 

Einnig var boðið uppá fyrirlestur um nýsköpun og stofnun lítilla fyrirtækja.

 

Inni í hlöðu Halldórsfjóss mátti líta fjölbreyttar tegundir kanína, s.s. fjölbreytta liti af Castor Rex, Lionade, Loop og loðkanínur.

 

Einnig mátti skoða og þreifa á mismunandi verkuðum kanínu- og héraskinnum og skoða vörur úr skinnum og fiðu. Spunnin var fiða á staðnum og handbrögðin sýnd af Ritu Freyju Bach frá Ullarselinu.

 

Ungmenni staðarins buðu krökkum í leiki og í andlitsmálun. Einnig gat fólk spreytt sig á að greina fugla- og plöntutegundir og fengið sér kaffi og vöfflur til styrktar Landbúnaðarsafni Íslands. Veðurblíðan lék við fólk.

 

Í lok dags var svo haldinn stofnfundur Kanínuræktarfélag Íslands (KRÍ) þar sem samþykkt voru lög félagsins, verkefni mótuð og kosin stjórn.

 

Í stjórn félagsins voru kosin þau Guðni Indriðason, Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir og Sigrún Elíasdóttir, í varastjórn Jóhann Helgi Hlöðversson og Gunnar Þór Árnason.

 

Þeir sem hafa áhuga á að verða félagsmenn KRÍ eru beðnir að hafa samband við stjórnarmenn. 

ÁHB

 

Landbúnaðarsafn Íslands þakkar öllu því góða fólki sem þarna lagði góðu málefni lið við þennan fyrsta atburð er fram fer í Halldórsfjósi sem safn- og sýningarhúsi.

 

Mjór er mikils vísir og þarna var unga fólkið að störfum! Það veit á gott.