8. júní 2009
Kynnist kanínunum - á Hvanneyri 13. júní
Nú gefst einstakt tækifæri til þess að kynnast kanínubúskap - sjá frétt á Skessuhornssíðunni
http://www.skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=88972&meira=1
Tilvalið er að leggja leiðina að Hvanneyri á laugardaginn kemur og fræðast um þessi merkilegu húsdýr, hvort sem sótst er eftir afþreyingu, almennum fróðleik eða frumþekkingu til kanínuræktar.
Áhugahópur hefur unnið að undirbúningi Dags kanínunnar, eins og í fréttinni segir, og þarna verður ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt að sjá og heyra.
Með kaupum á hressingu gefst gestum færi á að styðja starfsemi Landbúnaðarsafnsins í leiðinni.