11. júní 2003
Þjóðminjavörður í heimsókn
Í gær, 11. júní, heimsótti Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður Búvélasafnið, ásamt Ragnheiði Helgu Þórarinsdóttur sérfræðingi í lista og safnadeild menntamálaráðuneytisins, Rakel Halldórsdóttur starfsmanni Safnaráðs og fleirum. Gestirnir skoðuðu safnið og þær breytingar sem verið er að vinna að, bæði á sýninga- og geymslurými. Framtíðarhugmyndir voru ræddar, m.a. á hvern hátt skynsamlegt væri að standa að eflingu Búvélasafnsins í hópi annarra safna í landinu. Heimsóknin var hin ánægjulegasta og er góðs árangurs vænst af henni.