Senda á Facebook
24. maí 2009

Upp í garð til Sæmundar ...

Fræg er sagna um kerlinguna í Odda sem rak hrífuna undir sáturnar er við það hófust á loft og svifu heim í garð til Sæmundar - hann mátti svo hafa sig allan við að taka á móti og leysa úr þeim þar.

 

Um aldur var þetta draumur margra er máttu búa við frumstæðari hirðingarháttu. Það var svo árið 1946 að til landsins kom heyhleðsluvél, af gerðinni Massey Harris, talin fyrsta vélin þeirrar gerðar er hingað kom 

 

Heyhleðsluvélarnar mæltust vel fyrir og komu á marga bæi, líklega flestar af gerðinni IHC McCormick. Vélarnar voru tengdar aftan í heyvagninn. Á þeim var sópvinda sem nam heyið upp úr múga og þokaði því með færiörmum upp í vagninn. Aðalvinnan var svo að fær til í vagninum.

 

Hirðubændur á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal höfðu fyrir allnokkrum árum heitið Landbúnaðarsafni heyhleðsluvél af gerðinni McCormick sem þeir höfðu notað og síðan haldið hlífiskildi yfir - í meira en hálfa öld.

 

Nú er hún komin að Hvanneyri eins og myndin sýnir. Jóhannes okkar Ellertsson vélakennari er að leggja yfir hana hendur og pússa hana til. Heyhleðsluvélin er í besta standi og nær alheil.

 

Hver veit nema við reynum hana á Hvanneyrarfitinni í sumar. Þetta voru víst glimrandi góð verkfæri - hlóðu sem svaraði til 4-5 tonna af heyi á klukkutíma, samkvæmt mælingum frá fimmta áratugnum.