Senda á Facebook
31. maí 2003

Bulldozer - Calfdozer?

Eins og frá hefur verið sagt eru í ár liðin 60 ár frá því fyrsta ræktunarjarýtan hóf störf hérlendis. Vélar þessar hafa verið kallaðar „bulldozers” á ensku. Sjálfsagt vita færri að líka voru til „calfdozers”. Eins og munur er á bola og kálfi er munur á þessum tveimur gerðum ýtutækja: „Calfdozers” þóttu henta vel í þröngrými, t.d. í lestum skipa og við létta jarðvinnu, þar sem venjulegum ýtum varð ekki við komið...„the little dozer with the big push”, var orðið sem á vélinni lá.

 

„Calfdozers” komu á markað í lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Þetta voru beltavélar; ekill sat á milli aflvélar og ýtutannar og stýrði beltagangi með stöngum rétt eins og gert var á stærri jarðýtum. Hann hvíldi fætur sína á efri brún ýtutannarinnar.

 

Heimsíðungur rakst á afar greinargóða frásögn í máli og myndum af þessum sérstæðu vélum á heimasíðunni: http://mysite.freeserve.com/Calfdozer/page1.html     

Skoðið hana.

 

Heimsíðungi er kunnugt um a.m.k. eina slíka vél hérlendis.