14. maí 2009
Haldið upp á sextugsafmæli
Í gær héldum við uppá það að 60 ár voru liðin frá því að Ferguson-dráttarvélin var fyrst kynnt Íslendingum.
He
imsíðungur sýndi 60 ljósmyndir frá fyrstu árum Ferguson hérlendis, þ.á.m. frá kynningunni sem fram fór á Keldum í Mosfellssveit föstudaginn 13. maí 1949. Myndasýningin fór fram í BÚT-salnum á Hvanneyri við húsfylli.
Að lokinni ljósmyndasýningu var fyrsta Ferguson-dráttarvélin, sem seld var á Íslandi, hyllt með ávarpi og húrrahrópum. Síðan var hún ræst og Erlendur Sigurðsson vélameistari safnsins ók henni heiðurshring. Notalegt vélarmalið bar marga viðstadda aftur í löngu horfið sveitalíf.
Á myndinni sjáum við þorra samkomugesta og Ferguson-vélina, sem mun vera önnur þeirra er kynnt var á Keldum. Hún var síðan seld þangað og notuð þar um árabil. Dráttarvélar hf keyptu hana aftur og létu gera hana upp í tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins, en gáfu hana síðan safninu á Hvanneyri.
Þess má geta að Landbúnaðarsafn á þegar einnig nokkuð úrval verfæra við Ferguson. Á myndinni sjáum við t.d. tvöfalt diskaherfi af Ferguson-gerð, sem þau útveguðu Jóhanna og Einar Jónsson í Neðri Hrepp í Skorradal.
Áformað er að sagnabókin ... og svo kom Ferguson komi út á slætti í sumar hjá Uppheimum á Skaga en myndirnar, sem sýndar voru, munu flestar verða í henni.
Stefnt er að því að halda héraðsmót Fergusonanna á Hvanneyri laugardaginn 18. júlí nk. Verður það gert með samvinnu Landbúnaðarsafns og Jörva hf, og sennilega fleiri aðila eins og nánar verður kynnt...