Senda á Facebook
2. maí 2009

Leikir barna - leikföng

Ýmis söfn á landinu vinna nú að sameiginlegu verkefni á sviði samtímasöfnunar undir yfirskriftinni Leikir barna. Landbúnaðarsafn styður verkefnið en er ekki beinn þátttakandi í því.

 

Í þjóðvæðingu síðari ára hefur munurinn á leikjum barna í þéttbýli og sveitum sennilega mjög minnkað. Eitt af rannsóknaefnunum er þó hvort hann sé enn til staðar og þá í hverju hann felst.

 

Hins vegar leiðir verkefnið hugann að öðrum þætti - leikföngum barna í sveit á síðustu áratugum.
  

 

Alþekktir voru (og eru vonandi enn ...) hinir svonefndu "búaleikir" þar sem hugumstórir bændur beggja kynja, þótt ekki væru háir til hnésins,  komu sér upp fjölda búfjár, myndarlegum peningshúsum og vélum til umfangsmikilla verka.

 

Einhverjum af gripum þessum eða ljósmyndum af þeim kann að hafa skolað inn á söfn svo varðveitt sé merkileg saga. Heimsíðungur hvetur til þess að lesendur leiði hugann að viðfangsefninu.

 

Hins vegar vill hann sérstaklega leita eftir því hvort einhver (einn eða fleiri) búi svo vel að geta útvegað leikfangatraktor, leikfangaverkfæri eða önnur leikföng sem herma síðari tíma landbúnað - hinn tæknivædda landbúnað?

 

Hér er eingöngu átt við heimagerða/íslenska gripi en ekki þá sem kunna að hafa verið keyptir sem innflutt verksmjðjuframleiðsla úr plasti eða málmum.

 

Áhugavert væri að eiga dálítið sýningarhorn innlendra landbúnaðar-leikfanga við hlið "alvöru"gripanna, bæði til þess að halda sögu til haga og til þess að minna að á það að leikur ungra verður oft að lífsins alvöru. Fyrir hvort tveggja hefur landbúnaðurinn þörf.

 

Vinsamlegast hafið samband ef þið getið lagt okkur lið með grip eða sögu - góð ljósmynd af grip segir líka heilan helling...

 

bjarnig@lbhi.is  og GSM 894 6368