29. apríl 2009
Gott málþing um Ólafsdal
Á sumardaginn fyrsta var í Búðardal haldið málþing um Ólafsdal. Þar voru flutt erindi um staðinn, búnaðarskólann og Torfa Bjarnason, sk
ólastjóra hans.
Það var Ólafsdalsfélagið sem stóð að málþinginu í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands.
Á málþinginu fluttu erindi þau Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsadlsfélagsins, Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur, Guðrún Hallgrímsdóttir verkefnisstjóri og Bjarni Guðmundsson prófessor. Árni Daníel flutti einnig erindi Viðars Hreinssonar, sem forfallaðist á síðustu stundu.
Miklar umræður urðu á þinginu um málefni Ólafsdals, annars vegar um það sem gerir Ólafsdal að merkum sögustað og hins vegar þeim möguleikum sem þar eru til endurreisnar og eflingar starfa til framtíðar. Komu þar fram margar hugmyndir sem vænlegar þóttu.
Málþinginu stjórnaði Sumarliði Ísleifsson sagfnfræðingur.
Málþingið var mjög vel sótt en það var liður í Jörvaglði Dalamanna.