20. apríl 2009
Hver er maðurinn?
Vegna bókargerðar er heimsíðungur að leita eftir því hver muni vera óþekkti sláttumaðurinn á meðfylgjandi mynd.
Ljósmyndina tók Ólafur Guðmundsson á Hvanneyri, sennilega á
árunum 1955-1958 og þá hugsanlega í Borgarfirði.
Kannist einhver við þennan góðlega öldung sem beitir sínum Ferguson til sláttar, með ljósa fingravettlinga, í samfesting og undir barðamiklum hatti að hætti fyrirmanna þeirrar tíðar, þætti mér vænt um að heyra frá þeim heimildarmanni.
Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri, s. 894 6368, bjarnig@lbhi.is