Gunnar Gunnarsson heitir maður ágætur sem um árabil var sölumaður landbúnaðartækja, lengst af hjá Véladeild SÍS og Dráttarvélum hf. Hann man tímana tvenna hvað snertir innflutning og sölu búvéla - og tæknivæðingu landbúnaðarins.

Á þeim degi, er hinnar heilögu kvöldmáltíðar var neytt fyrir margt löngu, kom Gunnar færandi hendi til Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri.
Meðferðis hafði Gunnar langt til 80 ljósmyndir sem tengjast tæknisögu landbúnaðarins, einkum á árunum 1960-1980, og varða með einum eða öðrum hætti löng og merkileg störf Véladeildar SÍS og Dráttarvéla hf.
Bæði voru þessi fyrirtæki stór á sínum sviðum og höfðu mikil áhrif á þróun landbúnaðar hérlendis.
Meðfylgjandi er mynd úr nefndu safni. Hún var tekin í fyrrum túni Ingólfs bónda Arnarsonar 1964-65 og sýnir atburðinn þegar Ásgeir frá Tröllatungu Jónsson, deildarstjóri búvéladeildar SÍS, afhenti Aðalsteini bústjóra á Korpúlfsstöðum, splunkunýja IHC-dráttarvél af gerðinni B 414, sennilega þá fyrstu sem til landsins kom. Það er óþekktur kaupamaður Aðalsteins sem vélina situr.
B 414 þóttu merkilegar vélar: Búnar ýmsum samtímaþægindum, svo sem vökvastýri, tvöfaldri kúplingu og þrítengibúnaði sem þá var að koma á svo til allar vélar. Vélin var traustbyggð, gangurinn ef til vill ögn harður og hvellur, en hún naut sín vel þar sem átaks var þörf hvort heldur var í flögum ellegar við þyngri heyskaparverk.
Vélinni fylgdu ágæt moksturstæki frá sama framleiðanda. B 414-vélarnar hafa því mörgu heyhlassinu svipt til vagns og hlöðu, svo og lempað til efni í ýmsa nýbygginguna til sveita á þessum árum.
Hvað gjöf Gunnars snertir eru ótaldar bækur um bútækni frá þessum árum, sem verða góð viðbót við bókakost Landbúnaðarsafns er hægt og bítandi vex.
Landbúnaðarsafn Íslands færir Gunnari Gunnarssyni bestu þakkir fyrir hugulsemina og gögn þessi.