Senda á Facebook
31. mars 2009

Íslensk ljósmynd eða .....?

Nýlega kom út bók á vegum danska forlagsins Motorploven um Ferguson. Mikið og vandað rit í hvívetna. Í bókinni er urmull ljósmynda af Ferguson-dráttarvélum við ýmis tækifæri en í Danmörku eins og á Íslandi varð Ferguson gríðarlega vinsæl dráttarvél.

 

Ein myndanna í bókinni vakti sérstaka athygli heimsíðungs. Ástæðan er sú að margt bendir til þess að myndin hafi verið tekin á Íslandi. Aðspurður er höfundur bókarinnar, Jakob Kjær, ekki viss, en taldi myndina hafa verið tekna í Noregi. Svo kann að vera.

 

Við birtum nú myndina og spyrjum hvort einhver kannist við myndefnið: staðinn, bæjarhúsin, fólkið, dráttarvélina, tilefnið....?

 

Þarna er bersýnilega verið að kynna Ferguson-dráttarvél eða verkið: plægt er líklega með einskera og athygli vekja hálfbeltin sem notuð eru.

 

Það, sem helst mælir með að myndin sé íslensk, er:

- fjallið og gróðurleysi grýttrar hlíðarinnar

- bærinn

- þúfóttir plógstrengirnir

- girðingin og línustaurarnir

- fólkið og klæðnaður þess

- ....

 

Eftir myndefninu að dæma gæti myndin hafa verið tekin á árunum 1957-1960, á að giska.

 

Allar ábendingar eru vel þegnar. Síminn er 894 6368 og netfangið bjarnig@lbhi.is