15. maí 2003
Gleði á Bessastöðum - og á Hvanneyri
Heimsíðungur færir Bessastaðabændum fyrir hönd Búvélasafnsins bestu hamingjuóskir vegna tvennra gleðiatburða þar á nýliðnum Vinnuhjúaskildaga, 14. maí. En gleði ríkir víðar í lýðveldinu því þessa dagana er verið að ganga frá 450 m2 geymsluhúsnæði fyrir Búvélasafnið í aflögðu loðdýrahúsi á Hvanneyri. Undanfarna daga hefur Guðmundur ráðsmaður Hallgrímsson með sínum mönnum hreinsað húsið og breytt skipan þess þannig að nú verður þarna til hin ágætasta geymsla fyrir fjölmarga gripi sem hingað til hafa verið á hrakhólum utan dyra og innan bæði á Hvanneyri og hjá ýmsum gefendum. Aðstaða safnsins batnar til stórra muna og á stjórn Landbúnaðarháskólans þakkir skildar fyrir skilning á málinu. Gert er ráð fyrir að gripum verði komið þannig fyrir að sérstakir fornbúvélaáhugamenn geti gengið þar um og skoðað gripinar. Hin eiginlega sýning Búvélasafnsins verður áfram á sínum stað – en einnig þar er að verða breyting sem við munum brátt greina frá. Fylgist því með tíðindum hér á síðunni!