21. mars 2009
Forntraktorar - meira en járn og stál II
Í dag var haldið á Hvanneyri annað námskeiðið undir heitinu Forntraktorar - meira en járn og stál. Það er samvinnuverkefni LbhÍ, Landbúnaðarsafns Íslands og Verktakafyrirtækisins Jörvi hf.
Námskeiðið var fullsetið 20 þátttakendum sem komu víða að á svæðin
u frá Skagafirði til Austur Eyjafjalla. Þarna voru saman komnir miklir reynsluboltar sem miðluðu hver öðrum úr þeim köflum lífsbóka sinna er fjalla um gamlar dráttarvélar.
Farið var yfir ýmsar hliðar varðveislu og umhirðu eldri dráttarvéla og þeirrar sögu sem gerir þær merkilegar.
Meðfylgjandi mynd sýnir áhugasama þátttakendur á námskeiðinu spjalla við einn leiðbeinendanna, Hauk Júlíusson framkvæmdastjóra Jörva hf sem stendur við afturhjól nýuppgerðrar Ferguson TF dráttarvélar á verkstæði sínu. Myndina tók ÁHB.
Þarna eru frá vinstri talið Viðar á Ásólfsskála, feðgarnir Ingimar og Magnús frá Kjalardal, Haukur Júlíusson, Sigmar í Sólheimum og Arnór á Eiði.
Veigamikill þáttur námskeiðanna byggist á jafningjafræðslu og þarna er það Viðar á Ásólfsskála sem fræðir en hann hefur unnið mikið að varðveislumálum fyrir Skógasafn.
Næsta námskeið í þessum flokki og það síðasta um sinn verður haldið nk. laugardag, 28. mars, og er það nær fullbókað en hámarksfjöldi þátttakenda er 20.