Senda á Facebook
16. mars 2009

Trjábolir til heyhirðingar?

Heimsíðungur hefur löngum talið að skógrækt væri til gagns ef hún er til gagns, svo notuð sé heimspeki sr. Jóhanns hjá HKL um kaffið. Þessa dagana stendur safnið í nokkrum samskiptum við aðila í Hallingdal, meðal annars á Brúarflötum, sem heitir Brusletto á máli heimamanna. Brusletto er heiti verksmiðjunnar er sló íslenskum bændum ljái - Eylandsljáina svonefndu - um stóran hluta síðustu aldar.

 

En Brúfletingar gerðu fleira eins og nú skal greina:

 

Á Brúarflötum voru víst smíðaðir heysleðar, eiginlega þó vagnar, á fjórum hjólum sem raunar voru bara þverkubbaðir, snyrtir og styrktir trjábolir. Heimsíðungur hefur reynt að teikna tækið, sjá meðf. mynd.

 

Í Landbúnaðarsafni eigum við svona hjól en ekki heilan undirvagn. Við vitum hins vegar ekki hvar hjólin voru smíðuð - en þau komu úr Húnaþingi.

 

Ljósmyndir úr íslenskum sveitum sýna að vagnar/sleðar þessarar tegundar voru til all víða hérlendis.

 

Nú spyrjum við hvort einhver viti um fleiri hjól þessarar tegundar að ekki sé nú nefndur heill undirvagn.

 

Líka spyrjum við hvort einhver kannist við að hafa séð slíkan vagn í notkun og/eða hafi hugmynd um hvaðan hann muni hafa komið.

 

Heimsíðungur hefur grun um að þeir hafi verið í notkun fram yfir miðja síðustu öld.

 

Hér er allur fróðleikur vel þeginn....