Í dag komu í safnið 40 nemendur hönnunartengdum fræðum við Iðnskólann í Reykjavík. Fyrir einskæra tilviljun varð það heimsíðungi ljóst, þá hann bjó sig undir að segja nemendum frá safninu, að í ár mun
u vera 70 ár síðan forstöðumenn IHC-verksmiðjanna fengu Raymond Loewy til þess að hanna bókstafalínuna sína í dráttarvélum, þe. Farmall (A, B, BN, C, H, M, and MD, sjá http://en.wikipedia.org/wiki/Farmall_tractor
Hönnuðahópurinn raðaði sér því umhverfis Farmall-vélar safnsins (A og Cub) til þess að skoða þær með augum hönnuðarins. Nemendurnir höfðu aldrei heyrt að Raymond Loewy hafi unnið að búvélahönnun, en töldu sig fljótt sjá handbragð hins merka hönnuðar.
Raymond var uppi árin 1893-1986, bandarískur var hann. Lesa má um hann og verk hans á síðunni www.raymondloewy.com/ og víðar.
Einhver hefur sagt að meðalfjölskylda þróaðra landa komist vart í gegnum daginn án þess að hnjóta um hönnunarverk Raymonds eða tengd honum.
Þannig má minna á merkin frægu Lucky Strike, "kók", BP og Shell, bara til þess að nefna nokkur, en útlit bíla hannaði karlinn líka, hús og margt fleira.
39-útlitið fylgdi Farmall langt fram á sjöunda áratuginn. Raunar lengur því línur í fési Farmall B 414 sem víða naut vinsælda hérlendis og var að störfum langt fram á áttunda áratuginn, og sums staðar lengur, áttu sér rætur í gamla Farmall-svipnum.
Þó Farmallinn sé merkilegur er hönnuður hans það ekki síður, eins og lesa má á hinni opinberu heimasíðu hans:
Proven time and again, Loewy's design principals continue to be relevant years after their inception. Today, he has rightly found his place in history as the Father of Industrial Design.