Senda á Facebook
23. febrúar 2009

Fundað um Ferguson 24. febrúar

Ferguson-félagið sem sennilega er annað merkilegasta félag á Íslandi (sjá www.ferguson-felagid.com) boðar til fundar í Tækniskólanum við Skólavörðuholt, stofu nr. 204 á morgun, þri. 24. febrúar.

Skólinn þar við holtið verður opnaður kl. 19.30 svo fundur geti hafist þar kl. 20. Allir eru velkomnir, segja þeir Fergsyningar.

 

Á fundinum mun heimsíðungur, Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri, halda erindi með skyggnulýsingum um Grána Ferguson: höfuðsmið hans, hvernig þessi merka dráttarvél kynntist Íslendingum og hvaða áhrif hún hafði einkum í sveitum landsins.

 

Gert er ráð fyrir að fundurinn verði gagnvirkur þannig að sem mest jafningjafræðsla verði viðhöfð, enda margir félagsmenn Fergsyninga stórfróðir um þessa merkilegu dráttarvél.

 

Bjarni baukar nú við það að tína saman sögu Grána Fergusonar á Íslandi í tilefni sextugsafmælis þess síðarnefnda á Íslandi í ár.

 

Honum er því stór akkur í öllum fróðleik um Grána, og ekki síst eru góðar ljósmyndir af honum (Grána) og safamiklar sögur um hann vel þegnar.

 

Blessaður sendu mér, lesandi góður, fróðleik um Ferguson (sögu, mynd), ef þú lumar á.

 

Ég hef símann 894 6368 og póstinn bjarnig@lbhi.is