14. febrúar 2009
Fyrsta skref safnsins til Halldórsfjóss
Síðastliðinn miðvikudag, 11. febrúar, var stigið fyrsta skref til framkvæmda í Halldórsfjósi á Hvanneyri þar sem Landbúnaðarsafn Íslands mun hafa miðstöð sína. Á grundvelli samnings hófu PJ byggingar þá verk í
þeim hluta fjóssins sem rúma á aðkomu gesta og þjónustu við þá, svo og hluta af sýningarrými.
Þar var áður mjólkurhús, kálfafjós og helmingur þurrheyshlöðunnar!
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar þeir Bjarni Guðmundsson fyrir hönd safnsins og Pétur Jónsson byggingameistari handsöluðu gerninginn.
Fjárráð Landbúnaðarsafns leyfa ekki enn stóra áfanga svo hér er um afmarkað undirbúningsverk að ræða, til hagræðis vegna frekari hönnunar og framkvæmda. Hugsanlega verður þó unnt í takmörkuðum mæli að leiða gesti inn í hluta Halldórsfjóss á komandi sumri.
Að hönnun safnaðstöðunnar í Halldórsfjósi vinnur Sigríður Sigþórsdóttir frá Einarsnesi, arkitekt hjá VA-arkitektum í Reykjavík.
Halldórsfjós er eiginlega einn stór safngripur, áttræður að aldri, og mætti það því margt um búnaðarsögu 20. aldar segja hefði það mál.
Hersla verður lögð á að láta bygginguna og sögu hennar njóta sín sem best og mest án mikilla breytinga á innri gerð. Hið ytra mun gerð byggingarinnar verða látin halda sér svo sem var þegar notkun hennar sem fjóss lagðist af.
Hálfnað er verk þá hafið er.